Í hópi helstu kvenfrumkvöðla

Aldís Kristín Árnadóttir Firman.
Aldís Kristín Árnadóttir Firman. Ljósmynd/Facebook

Lögfræðingurinn Aldís Kristín Árnadóttir Firman er í hópi 100 efstu kvenfrumkvöðla minni fyrirtækja í Bretlandi undir hatti herferðarinnar #ialso sem f:entrepreneur rekur. Topp 100 listinn er sérstaklega settur saman í tilefni Alþjóðadags kvenna sem er í dag.

Í fréttatilkynningu frá f:entrepreneur kemur fram að Aldís sé uppalin í Reykjavík á Íslandi en hafi búið í Lundúnum síðustu 17 ár.

Hún er annar stofnanda Lilou et Loïc sem framleiðir hágæða ilmvörur fyrir heimili og fyrirtæki en fyrirtækið framleiðir meðal annars fyrir konungshöllina í Bretlandi. Það var stofnað árið 2011 og Aldís tók við sem framkvæmdastjóri fyrir fjórum árum.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK