Staðfestu ógildingu samruna apótekanna

Lyf og heilsa kærði ákvörðun Samkeppniseftirlitsins til áfrýjunarnefndar, sem féllst …
Lyf og heilsa kærði ákvörðun Samkeppniseftirlitsins til áfrýjunarnefndar, sem féllst ekki á það með fyrirtækinu að rannsókn eftirlitsins hefði verið gölluð. mbl.is/Golli

Áfrýjunarnefnd samkeppnismálagilding staðfesti í dag ógildingu á kaupum Lyfja og heilsu á Apóteki MOS, en Samkeppniseftirlitið ógilti í október í fyrra áformaðan samruna með kaupum Lyfja og heilsu hf. á Opnu ehf. (Apóteki MOS).  Frá þessu er greint á vef Samkeppniseftirlitsins.

Lyf og heilsa rekur 30 apótek um landið, annars vegar undir heitinu Lyf og heilsa og hins vegar Apótekarinn. Eru Lyf og heilsa einn stærsti lyfjasmásali á landinu. Opna rekur hins vegar eitt apótek í Mosfellsbæ, Apótek MOS og var það apótek opnað um mitt ár 2016. Áður en Apótek MOS hóf starfsemi var eitt apótek í Mosfellsbæ, Apótekarinn sem er í eigu Lyf og heilsu. Eru Apótek MOS og Apótekarinn einu lyfjaverslanirnar í Mosfellsbæ í dag.

Rannsókn Samkeppniseftirlitsins er sögð hafa sýnt að innkoma Apóteks MOS hafði „mjög góð áhrif á samkeppni á svæðinu. Bauð Apótek MOS upp á nýja þjónustu í formi skipulags verslunarinnar og aðstoðar lyfjafræðinga. Einnig var opnunartími lengri en áður hafði tíðkast í Mosfellsbæ. Sýndu gögn málsins að neytendur tóku þessum nýja valkosti vel og hafði samkeppni frá Apóteki MOS veruleg áhrif á rekstur Apótekarans í Mosfellsbæ,“ að því er segir í fréttinni.

Upplýst var í málinu að Lyf og heilsa hefði sett sig í samband við forsvarsmann Apóteks MOS um kaup á félaginu og samningar hefðu náðust. Hefði samruninn orðið að veruleika þá „hefði sú samkeppni sem Apótek MOS veitti umræddu útibúi Lyfja og heilsu horfið.“

Leiddi rannsókn Samkeppniseftirlitsins í ljós að lyfsala í Mosfellsbæ er mjög staðbundin og að neytendur kjósa almennt að eiga viðskipti við apótek sem eru sem næst heilsugæslustöðvum/læknastofum eða heimilum þeirra. Þetta eigi ekki síst við í tilviki aldraðra eða þegar aðkallandi er að fá lyf í hendur. Samruni umræddra apóteka myndi því valda viðskiptavinum þeirra „verulegu samkeppnislegu tjóni“.

Lyf og heilsa kærði ákvörðun Samkeppniseftirlitsins til áfrýjunarnefndar, sem féllst ekki á það með fyrirtækinu að rannsókn eftirlitsins hefði verið gölluð, eða að það hefði lagt rangt mat á skilgreiningu markaðar málsins eða samkeppnisleg áhrif samrunans.

Var ógilding Samkeppniseftirlitsins því staðfest.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK