Auður og Sif til Aton

Auður Albertsdóttir og Sif Jóhannsdóttir.
Auður Albertsdóttir og Sif Jóhannsdóttir. Myndir/Ari Magg

Auður Albertsdóttir og Sif Jóhannsdóttir hafa verið ráðnar til starfa sem ráðgjafar hjá ráðgjafa- og almannatengslastofunni Aton. 

Auður Albertsdóttir var áður blaðamaður á Morgunblaðinu og á mbl.is, þar sem hún var meðal annars umsjónarmaður viðskiptafrétta á mbl.is. Síðustu misseri hefur Auður starfað við kynningar- og markaðsmál fyrir fyrirtæki og félagasamtök og situr í stjórn Ungra athafnakvenna. Auður er með MS gráðu í markaðsfræði og alþjóðaviðskiptum frá Háskóla Íslands og BA gráðu í bókmenntafræði frá sama skóla.

Sif Jóhannsdóttir hefur fjölbreytta reynslu af bókaútgáfu og undanfarin ár starfaði hún hjá Forlaginu við kynningu og sölu á íslenskum höfundum og verkum þeirra erlendis. Sif hefur langa reynslu af samningagerð við bæði innlenda og erlenda aðila. Áður vann hún sem verkefnastjóri útgáfu og stýrði um tíma kynningar- og markaðsmálum hjá Forlaginu. Sif var búsett í Kaliforníu í Bandaríkjunum í þrjú ár þar sem hún lærði verkefnastjórnun hjá UCLA og skrifaði pistla fyrir mbl.is og Kvennablaðið. Sif er með MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík og BA gráðu í frönsku og bókmenntum frá Háskóla Íslands.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK