Spá óbreyttum stýrivöxtum

Már Guðmundsson seðlabankastjóri.
Már Guðmundsson seðlabankastjóri. mbl.is/​Hari

Hagfræðideild Landsbankans telur að peningastefnunefnd Seðlabankans ákveði að halda vöxtum óbreyttum á næsta fundi nefndarinnar, en ákvörðunin verður tilkynnt miðvikudaginn 20. mars.

Bankinn telur litlar líkur á hvoru sem er, vaxtahækkun eða vaxtalækkun að þessu sinni, að því er fram kemur í Hagsjá bankans.

„Á síðustu tveimur fundum nefndarinnar var ákveðið að halda vöxtum óbreyttum. Vextir voru hækkaðir um 0,25 prósentur í nóvember í fyrra en þeim hafði verið haldið óbreyttum undanfarna sjö fundi þar á undan. Meðlimir nefndarinnar voru sammála um að halda vöxtum óbreyttum síðast en í desember setti einn nefndarmeðlimur sig á móti tillögu formanns nefndarinnar um óbreytta vexti og hefði heldur kosið 0,25 prósentustiga hækkun. Í febrúar íhugaði nefndin annars vegar óbreytta vexti og hins vegar vaxtahækkun upp á 0,25 prósentur,“ segir í Hagsjánni.

Sjá nánar hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK