Enn hækkar gengi Icelandair

Gengi Icelandair hefur hækkað mikið í gær og dag.
Gengi Icelandair hefur hækkað mikið í gær og dag. Eggert Jóhannesson

Gengi hlutabréfa í Icelandair Group heldur áfram að hækka verulega í Kauphöll Íslands.

Eftir tæplega 11% hækkun í gær nemur hækkun félagsins í dag 8,9% en viðskipti með félagið nema 334,5 milljónum króna í dag.

Gengi félagsins stendur í 8,69 krónum á bréfið.

Gengi Icelandair hækkaði verulega í gær sem líklega má rekja til frétta sem birtust á miðvikudag þess efnis að Skúli Mogensen, stofnandi og forstjóri WOW air, hefði leitast eftir því að ríkissjóður Íslands veitti ríkisábyrgð fyrir láni sem fyrirtækið ætlaði að taka vegna útistandandi skulda og brýnt þykir að greiða um komandi mánaðamót.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK