Áætlun sem ekki stóðst

Skúli Mogensen, forstjóri WOW air.
Skúli Mogensen, forstjóri WOW air. mbl.is/RAX

Skuldabréfaeigendur sem lögðu WOW air til 50 milljónir evra í september síðastliðnum gerðu það flestir á grundvelli rekstraráætlunar fyrir síðari hluta ársins 2018 sem kynnt var í útboðsferlinu.

Þar var gert ráð fyrir því að rekstrarhagnaður félagsins myndi nema 72 milljónum dollara, jafnvirði 8,7 milljarða króna. Þegar árið var gert upp reyndist árshelmingurinn hafa skilað neikvæðri rekstrarniðurstöðu sem nam 11 milljónum dollara, jafnvirði 1,3 milljarða króna. Þetta sýna gögn sem ViðskiptaMogginn hefur undir höndum.

Farþegaþota WOW air sést hér skömmu eftir lendingu í Berlín …
Farþegaþota WOW air sést hér skömmu eftir lendingu í Berlín í morgun. mbl.is/Haraldur

Munurinn milli áætlunarinnar og raunniðurstöðu rekstursins nemur 85 milljónum dollara, jafnvirði 10,3 milljarða króna. Líkt og Morgunblaðið greindi frá á mánudag nam tap af rekstri WOW air á síðasta ári 22 milljörðum króna.

Sjá fréttina í heild sinni í ViðskiptaMogganum í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK