Áforma 35 vindmyllur í Garpsdal

Vindmillur við Búrfell.
Vindmillur við Búrfell. mbl.is/Árni Sæberg

EM Orka áformar að reisa allt að 130 MW vindorkugarð í landi Garpsdals við Gilsfjörð í Reykhólahreppi. Um er að ræða allt að 35 vindmyllur sem eru um 150 metrar að hæð miðað við spaða í hæstu stöðu. Hver undirstaða yrði 113 m2 og þyrfti að leggja veg að hverri vindmyllu.

Allar vindmyllur verða tengdar saman með 33 kV jarðstrengjum sem verða plægðir niður og staðsettir eins og kostur er í vegstæði til þess að lágmarka rask. Safnstöð verður staðsett innan vindorkugarðsins þar sem spennan verður hækkuð í 132 kV. Frá safnstöðinni verður vindorkugarðurinn tengdur í spennistöð Landsnets í Geiradal, sem er í um 6 km fjarlægð. Gera má ráð fyrir að belti sem raskast vegna jarðstrengslagnar frá vindorkugarði að tengivirki verði að jafnaði um 12 m breitt. Það felst í vinnuvegi, skurði og svæði sem fer undir jarðveg sem kemur upp úr skurði. 

EM Orka er  í eigu EMP Holdings, sem er sameiginlega í eigu EMP IN og Vestas, en Vestas er einn stærsti vindmylluframleiðandi heims með 94 GW framleiðslugetu í 79 löndum. EMP er með höfuðstöðvar í Dublin. EMP var stofnað árið 2015 með það að markmiði að stuðla að og þjóna alþjóðlegum markmiðum um aukna áherslu á endurnýjanlega orku, þá aðallega á sviði vind- og sólarorku, samkvæmt kynningarriti sem Mannvit hefur unnið og er til skoðunar hjá Skipulagsstofnun.

Í kynningarritinu kemur fram að Garpsdalur er talinn vera svæði sem er vel til þess fallið að bera allt að 130 MW vindorkugarð. „Er þar einkum horft til hagstæðra vindskilyrða, nálægð í tengivirki, góðs aðgengis og fjarlægð frá byggð. Yfirborðið er mestmegnis melur með frostlyftu efni. Vegna mikillar hæðar yfir sjó er engin búseta innan svæðisins og lítið um dýralíf. Fyrirfram er talið ólíklegt að farflug sé algengt yfir svæðið.

Svæðið er innan 2730 ha lands í einkaeigu og af því er fyrirhugað að nýta um 320 ha undir vindmyllur. Forathugun gefur til kynna að svæðið gæti afkastað allt að 130 MW orkuvinnslu, miðað við allt að 35 vindmyllur og hver þeirra allt að 150 m á hæð. Val á staðsetningu tók mið af vindathugun. Ýtarlegri vindmælingar hófust haustið 2018 og munu standa yfir í 2 ár. Framkvæmdin er háð lögum um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000 m.s.br. Þessi tillaga að matsáætlun er fyrsta skrefið í matsferlinu. Í tillögunni er fjallað um fyrirhugað verkefni, gerð grein fyrir staðháttum og umhverfi og sett fram áætlun um mat á umhverfisáhrifum,“ segir ennfremur en hér er hægt að lesa tillögu til matsáætlunar í heild.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK