Konur þriðjungur stjórnarmanna

mbl.is/Eggert

Konur voru 26,2% stjórnarmanna fyrirtækja sem greiða laun og skráð eru í hlutafélagaskrá í lok árs 2018 samkvæmt fréttatilkynningu frá Hagstofu Íslands. Þar segir enn fremur að hlutfall kvenna í stjórnum fyrirtækja hafi verið á bilinu 21,3% til 22,3% á árunum 1999 til 2006, hækkað síðan í 25,5% árið 2014, og síðan verið um 26% síðustu fjögur ár.

„Árið 2018 voru konur 33,5% stjórnarmanna í fyrirtækjum með 50 launþega eða fleiri, og er það í fyrsta sinn sem það hlutfall mælist hærra en þriðjungur. Til samanburðar var hlutfall þeirra í stjórnum stórra fyrirtækja 12,7% árið 2007 og 9,5% árið 1999, en náði fyrra hámarki 33,2% árið 2014. Árið 2010 voru samþykkt lög um að hlutfall hvors kyns skyldi vera yfir 40% í stjórnum fyrirtækja með fleiri en 50 starfsmenn, og tóku þau að fullu gildi í september 2013. Hlutfall kvenna í stjórnum fyrirtækja með færri en 50 launþega stendur nánast í stað milli ára, 25,9%,“ segir enn fremur.

Þá segir að hlutfall kvenna í stöðu framkvæmdastjóra hafi hækkað lítillega milli ára, eða um 22,7%, sem fylgi eftir hægfara aukningu allt frá 1999. Hlutfall kvenna í stöðu stjórnarformanna hafi verið 24,1% í lok árs 2018.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK