Ingibjörg til Attentus á Norðurlandi

Ingibjörg Guðlaug Jónsdóttir mun sinna alhliða mannauðs- og stjórnendaráðgjöf á …
Ingibjörg Guðlaug Jónsdóttir mun sinna alhliða mannauðs- og stjórnendaráðgjöf á Norðurlandi fyrir Attentus. Ljósmynd/Aðsend

Ingibjörg Guðlaug Jónsdóttir hefur gengið til liðs við Attentus – mannauð og ráðgjöf og mun hún sinna alhliða mannauðs- og stjórnendaráðgjöf á Norðurlandi, með aðsetur á Siglufirði. Attentus hefur hingað til sinnt verkefnum á landsbyggðinni með ráðgjöfum úr Reykjavík en með ráðningu Ingibjargar Guðlaugar mun félagið styrkja þá þjónustu sína enn frekar.

Í tilkynningu segir að Ingibjörg hefur mikla reynslu af mannauðsmálum hér heima og í Þýskalandi. Hún var mannauðsstjóri líftæknifyrirtækisins Genis á Siglufirði frá árinu 2015 til 2018 og mannauðsstjóri hjá tónlistarhugbúnaðarfyrirtækinu Abelton í Berlín í fimm ár. Ingibjörg var áður sérfræðingur í stefnumótunarnefnd forsætisráðuneytisins um upplýsingasamfélagið og rafræna stjórnsýslu.

Ingibjörg lauk MSc námi í mannauðsstjórnun árið 2009 frá Háskóla Íslands og BA prófi í stjórnmálafræði frá sama skóla árið 2006. Hún hefur nýlokið diplómanámi í jákvæðri sálfræði, einnig frá Háskóla Íslands.

Attentus veitir fyrirtækjum og stofnunum ráðgjöf um allt sem snýr að rekstri út frá á áherslum mannauðsstjórnunar. Fyrirtækið þróaði meðal annars viðskiptalausnina „mannauðsstjóri til leigu” og hlaut hvatningarverðlaun FKA fyrir árið 2012 og nýta fjölmörg fyrirtæki sér þá þjónustu. Hjá Attentus eru nú 11 starfsmenn, þar af átta ráðgjafar og tveir sérfræðingar, sem sinna verkefnum á þessu sviði.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK