Mikið gleðiefni fyrir heimili og fyrirtæki landsins

mbl.is/​Hari

Vaxtalækkun Seðlabanka Íslands er mikið gleðiefni fyrir heimili og fyrirtæki landsins. Vaxtalækkunin styrkir Lífskjarasamninginn með því að draga úr vaxtakostnaði heimila og skapar svigrúm fyrir fyrirtækin til að mæta kostnaðarauka kjarasamningsins. Þetta segja Samtök atvinnulífsins. 

Fram kemur á vef SA, að verkalýðshreyfingin eigi hrós skilið fyrir að hafa lagt á vaðið og tekið áhættu við gerð Lífskjarasamningsins.

Þá kemur fram, að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands árétti afdráttarlausan stuðning við Lífskjarasamninginn.

„Þótt nýgerðir kjarasamningar á almennum vinnumarkaði feli í sér myndarlegar launahækkanir var niðurstaða þeirra í betra samræmi við verðbólgumarkmiðið en margir bjuggust við. Verðbólguvæntingar hafa því lækkað á ný en þær hækkuðu umtalsvert er leið á síðasta ár. Langtímaverðbólguvæntingar á markaði eru nú komnar undir 3%,“ segir peningastefnunefnd SÍ.

SA bendir á, að Seðlabankinn meti stöðuna hárrétt og viðbrögð hans senda tón sem ómar inn í framtíð vinnumarkaðarins.

„Skýr launastefna hefur verið mörkuð fyrir allan vinnumarkaðinn. Launastefnan hefur verið borin undir atkvæði verkalýðsfélaga sem samþykktu hana með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða, eða 80%, og  98% atvinnurekenda í Samtökum atvinnulífsins studdu hana.

Vaxtalækkun Seðlabankans í dag markar skörp skil frá vinnubrögðum fortíðar og er sigur fyrir lífskjör alls þorra landsmanna,“ segir í pistli á vef Samtaka atvinnulífsins. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK