Icelandair fellir niður fleiri flug

Boeing 737-MAX þotur Icelandair á Keflavíkurflugvelli.
Boeing 737-MAX þotur Icelandair á Keflavíkurflugvelli.

Flugfélagið Icelandair hefur uppfært flugáætlun sína fyrir seinni hluta sumarsins vegna þess að útlit er fyrir að kyrrsetning Boeing 737 MAX flugvéla félagsins muni vara lengur en áður var áætlað.

Við breytingarnar dregst sætaframboð félagsins saman um 5% á tímabilinu 15. júlí til 15. september.

Ásdís Pétursdóttir upplýsingafulltrúi Icelandair, segir að fækka þurfi flugferðum af þessum sökum. Lögð sé áhersla á að gera það til staða sem flogið er til oftar en einu sinni á dag og þegar stutt er á milli fluga.

„Icelandair hefur nú uppfært flugáætlun sína fram til 15. september nk. þar sem útlit er fyrir að kyrrsetning Boeing 737 MAX flugvéla muni vara lengur en áður hafði verið áætlað.

Eins og fram hefur komið hefur félagið nú þegar tekið þrjár leiguvélar í notkun til þess að lágmarka áhrif kyrrsetningarinnar á farþega. Þessu til viðbótar er unnið að lokafrágangi  samnings um leigu á einni Boeing 767-300 vél til viðbótar.

Vinna varðandi þessar breytingar mun hefjast á næstu dögum og munu starfsmenn Icelandair hafa samband við viðkomandi farþega.

Við þessar breytingar dregst sætaframboð félagsins á tímabilinu 15. júlí til 15. september saman um 5% frá því sem áður var áætlað. Eftir breytinguna er framboðsaukning milli ára á þessu tímabili samt sem áður 10%. Félagið leggur nú megináherslu á fjölgun farþega á mörkuðunum til og frá Íslandi og eiga rúmlega 30% fleiri farþegar bókað með félaginu til Íslands á tímabilinu júní – ágúst en á sama tíma í fyrra.

Fjárhagsleg áhrif kyrrsetningarinnar eru óviss á þessu stigi, m.a. vegna þess að ekki liggur fyrir hversu mikið af þeim kostnaði sem hlýst af kyrrsetningunni fæst bættur frá framleiðanda,“ segir í tilkynningu sem Icelandair sendi frá sér í gær. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK