Trommuleikari Dimmu nýr forstjóri

Birgir Jónsson, forstjóri Íslandspósts.
Birgir Jónsson, forstjóri Íslandspósts. Ljósmynd Birgir Ísleifur Gunnarsson

Birgir Jónsson hefur verið ráðinn nýr forstjóri Íslandspósts og hefur þegar tekið til starfa. Margir muna eftir Birgi sem fyrrverandi trommuleikara þungarokkshljómsveitarinnar Dimmu.

Birgir hefur, samkvæmt tilkynningu, víðtæka stjórnunar- og rekstrarreynslu í atvinnulífinu hér heima og erlendis, síðast sem framkvæmdastjóri Póstmiðstöðvarinnar en þar á undan var hann forstöðumaður mannauðslausna hjá Advania. 

Birgir lærði prentun hér heima, lauk BA-gráðu í prent- og útgáfustjórnun frá London Institute og MBA-prófi frá Westminster University í London.

„Ég er þakklátur fyrir það mikla traust sem stjórn Íslandspósts sýnir mér. Það er mikið ábyrgðarhlutverk að leiða Íslandspóst sem þjónar mikilvægum almannahagsmunum. Ljóst er að stór og krefjandi verkefni bíða. Ég hlakka til að takast á við þau og vinna með því góða fólki sem starfar hjá Íslandspósti um land allt,“ segir Birgir Jónsson í fréttatilkynningu.

„Með ráðningu Birgis fær Íslandspóstur öflugan stjórnanda sem við treystum fullkomlega til að takast á við þau fjölmörgu verkefni sem bíða og leiða þann fjölbreytta hóp sem hjá fyrirtækinu starfar,” segir Bjarni Jónsson, formaður stjórnar Íslandspósts, í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK