Ísland upp um fjögur sæti

Ísland er í tuttugasta sæti á listanum.
Ísland er í tuttugasta sæti á listanum. mbl.is/Hanna

Ísland fer upp um fjögur sæti á milli ára á lista viðskiptaháskólans IMD yfir samkeppnishæfni ríkja og situr nú í 20. sæti eða því sama og árið 2017.

„Í fyrra var niðurstaðan nokkur vonbrigði þar sem Ísland hafði skriðið upp listann fjögur árin þar á undan. Það má því segja að vonir hafi glæðst á ný,“ segir í tilkynningu frá Viðskiptaráði Íslands.

Ísland hækkar í öllum meginþáttum úttektarinnar en er þó enn alls staðar undir meðaltali hinna Norðurlandanna. Í efnahagslegri frammistöðu fer Ísland upp um þrjú sæti í það 54. að þessu sinni. Meiri hagvöxtur en í öðrum ríkjum skýrir þá þróun að miklu leyti.

Skilvirkni hins opinbera eykst einnig milli ára og fer Ísland þar upp um eitt sæti og ræður þar miklu betra mat stjórnenda á stofnanaumgjörð. Skilvirkni atvinnulífsins batnar milli ára og situr Ísland nú í 19. sæti, þökk sé meðal annars aukinni framleiðni og bættum stjórnarháttum. Þá hækkar Ísland um fjögur sæti og upp í það 13. í samfélagslegum innviðum þar sem margir ólíkir þættir spila saman, að því er segir í tilkynningunni.

Singapúr á toppnum

Bandaríkin, sem trónuðu á toppi listans í fyrra falla um tvö sæti og víkja fyrir Singapúr sem kemst aftur á toppinn. Hong Kong stendur í stað í öðru sæti en Sviss fer upp um eitt sæti og endar í því fjórða. Holland lækkar um tvö sæti og fer úr fjórða í það sjötta.

Ísland stendur Norðurlöndunum enn nokkuð að baki og má þar meðal annars telja smæð hagkerfisins, stofnana og tækniinnviða meðal áhrifaþátta. Danmörk er enn efst af Norðurlöndunum og lækkar um tvö sæti (8. sæti), Svíþjóð er næst og stendur í stað (9. sæti). Noregur fellur um þrjú sæti (11. sæti) og Finnland fer upp um eitt sæti, úr 16. í það 15. Sem fyrr segir er Ísland neðst af Norðurlöndunum í 20. sæti.

Ein sú umfangsmesta í heimi

Úttekt IMD á samkeppnishæfni þjóða er ein sú umfangsmesta í heimi og hefur verið framkvæmd í 30 ár. Úttektin samanstendur af 235 mælikvörðum. Um tveir þriðju þeirra eru í formi haggagna sem safnað er af IMD og samstarfsaðilum í hverju ríki fyrir sig. Þriðjungur byggir á alþjóðlegri stjórnendakönnun sem um 6.200 stjórnendur fyrirtækja og annarra samtaka taka þátt í.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK