Björn tekur við stjórn Iceland Travel

Björn Víglundsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Iceland Travel, dótturfélags Icelandair …
Björn Víglundsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Iceland Travel, dótturfélags Icelandair Group. Ljósmynd/Aðsend

Björn Víglundsson hefur verið ráðinn nýr framkvæmdastjóri Iceland Travel, dótturfélags Icelandair Group. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandair Group. Hörður Gunnarsson, sem leitt hefur félagið í tæpan áratug, mun verða félaginu til ráðgjafar næstu mánuði, en gert er ráð fyrir að söluferli á Iceland Travel hefjist á haustmánuðum.

Björn starfaði sem framkvæmdastjóri miðla hjá Sýn á árunum 2017-2019 þar sem hann leiddi sameiningu ljósvaka- og netmiðla Vodafone og 365 við samruna fyrirtækjanna. Áður starfaði hann sem framkvæmdastjóri sölu- og þjónustusviðs hjá Vodafone, á árunum 2013-2017, en hafði þá starfað sem framkvæmdastjóri einstaklingssviðs frá árinu 2009 og framkvæmdastjóri markaðssviðs frá árinu 2005.

„Það er ánægjulegt að fá Björn Víglundsson til starfa en hann hefur áratuga reynslu af stjórnun markaðs- og sölumála og er því vel í stakk búinn til að takast á við þær áskoranir og tækifæri sem Iceland Travel stendur frammi fyrir með því góða fólki sem þar starfar,“ er haft eftir Boga Nils Bogasyni, forstjóra Icelandair í fréttatilkynningu, en hann þakkar einnig Herði Gunnarssyni fyrir vel unnin störf og framlag sitt við uppbyggingu Iceland Travel síðastliðinn áratug.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK