Erlend kortavelta dróst saman um 13%

Ferðamenn á Akureyri í síðasta mánuði.
Ferðamenn á Akureyri í síðasta mánuði. mbl.is/Þorgeir

Erlend kortavelta án flugsamgangna dróst saman í maí um 13,1% á milli ára og nam 16,2 milljörðum króna. Hlutfallsleg lækkun í kortunum er nokkuð minni en fækkun ferðamanna samkvæmt talningu Ferðamálastofu og Isavia en hún var 24% frá sama mánuði í fyrra.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Rannsóknasetri verslunarinnar. Þar segir að fall WOW air sé vafalaust stærsti einstaki þátturinn sem valdi lækkun kortaveltunnar frá fyrra ári.

Tölur Rannsóknasetursins sýna kortaveltuna án flugsamgangna og mæla því ekki bein áhrif minni miðakaupa þess flugfélags heldur óbeinu áhrifin sem felast í fækkun ferðamanna.

Gengi krónunnar hefur veikst um í kringum 12% frá maí í fyrra. Innlendar ferðaafurðir sem eru seldar í krónum eru því þeim mun ódýrari í augum erlendra ferðamanna en fyrir ári. Sé lækkun kortaveltunnar í mánuðinum reiknuð í erlendri mynt lætur nærri að hver ferðamaður hafi eytt svipaðri fjárhæð hérlendis samanborið við maí í fyrra. Í íslenskum krónum jókst aftur á móti kortavelta á hvern ferðamann um 13,6%, að því er segir í tilkynningunni.

Ánægðir ferðamenn á Þingvöllum.
Ánægðir ferðamenn á Þingvöllum. mbl.is/Sigurður Bogi

Verulegur hluti þess sem útlendingar greiða fyrir hérlendis með kortum sínum fer í gegnum netsölu. Samdráttur í kortaveltu í gegnum posa nam tæplega 17% en samdráttur um net var rúmlega 5%. Stærsti flokkurinn í netsölu, bæði hlutfallslega og mælt í veltu er ýmis ferðaþjónusta en hann inniheldur afþreyingaferðir, ferðaskipuleggjendur og álíka.

Um 70% kortaveltu flokksins kemur í gegnum netið (2,5 milljarðar króna) og dróst sá hluti einungis saman um tæpt eitt prósent frá fyrra ári, samanborið við ríflega 16% samdrátt sama flokks í gegnum posa. Gæti þetta verið til marks um að hlutfallslegur samdráttur verði minni þegar líður á sumarið en raungerðist í maí.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK