Mun færri með Costco-kort en áður

mbl.is/Kristinn Magnússon

Rúmlega helmingur (53%) Íslendinga er með virkt aðildarkort í Costco samanborið við 71% landsmanna í upphafi árs 2018. Þetta kemur fram í nýrri könnun MMR. 

Á sama tíma og þeim hefur fækkað sem eru með virkt Costco-aðildarkort hefur hlutfall þeirra sem hyggjast endurnýja kortið hækkað. Hyggjast nú 78% þeirra sem hafa virkt aðildarkort endurnýja kortið þegar þar að kemur samanborið við 60% í janúar 2018.

Bandaríska verslunin Costco hóf starfsemi á Íslandi í maí 2017. Í janúar 2018 var 71% landsmanna með aðildarkort í Costco, samkvæmt könnun MMR frá þeim tíma.  

Fólk á aldrinum 30-49 ára (62%) og 50-67 ára (60%) reyndist líklegra en fólk í öðrum aldurshópum til að hafa virkt Costco-aðildarkort. Þá reyndist fólk á aldrinum 50-67 ívið líklegra en aðrir til að ætla að endurnýja Costco-aðild sína eða 85%. 

Höfuðborgarbúar (58%) reyndust líklegri til að vera með Costco-aðildarkort heldur en íbúar landsbyggðarinnar (42%) en hlutfall þeirra sem hugðust endurnýja aðildina var nokkuð jafnt eða tæp 80% bæði hjá höfuðborgarbúum og íbúum landsbyggðarinnar.

Nokkur munur var á Costco-aðild eftir stjórnmálaviðhorfum. Stuðningsfólk Miðflokksins reyndist hvað líklegast til að vera með Costco-aðildarkort eða 72% og 60%  Sjálfstæðisflokksins. Um helmingur stuðningsfólks Viðreisnar, Pírata og Samfylkingar voru með virkt aðildarkort en einungis 34% stuðningsfólks Vinstri grænna. Stuðningsfólk Miðflokksins reyndist jafnframt líklegast til að ætla að endurnýja Costco-aðild sína eða 91%.

Frétt MMR í heild

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK