Gunnlaugur Th. Einarsson hefur verið ráðinn upplýsingatæknistjóri Origo. Upplýsingatæknistjóri hefur snertifleti við alla starfssemi Origo, þvert á svið og stjórnskipulag.
Hann starfar náið með fjölda upplýsingatæknisérfræðinga við að endurmeta viðskiptaferla, innleiða stefnu og markmið fyrirtækisins í tæknimálum og kortleggja framtíðarsýn þess, að því er fyrirtækið greinir frá í tilkynningu.
Gunnlaugur, sem er með BS í tölvunarfræði frá Háskóla Íslands, hóf störf hjá forvera Origo árið 2001. Nú síðast hefur hann starfað sem tæknistjóri hjá viðskiptalausnum Origo, segir í tilkynningunni.