Rekstrarafkoma ríkissjóðs jákvæð

Samkvæmt ríkisreikningi var rekstrarafkoman jákvæð um 84 ma.kr.
Samkvæmt ríkisreikningi var rekstrarafkoman jákvæð um 84 ma.kr. mbl.is/Styrmir Kári

Samkvæmt ríkisreikningi var rekstrarafkoman jákvæð um 84 milljarða kr. til samanburðar við 39 milljarða afgang árið 2017. Tekjur námu samtals 828 milljörðum og rekstrargjöld 780 milljörðum. Hrein fjármagnsgjöld voru neikvæð um 56 milljarða en hlutdeild í afkomu félaga í eigu ríkisins jákvæð um 91 milljarð.

Ríkisreikningur hefur verið sendur Alþingi. Þetta kemur fram í frétt á vef Stjórnarráðsins. 

„Jákvæð afkoma ríkissjóðs árið 2018 endurspeglar styrk hagkerfisins þrátt fyrir að tekið hafi að halla undan fæti á síðari hluta ársins. Undanfarin ár hafa einkennst af nokkurri aukningu útgjalda í takt við auknar tekjur og ekki síst lækkandi vaxtabyrði ríkissjóðs.“ Þetta er haft eftir Bjarna Benediktssyni, fjármála- og efnahagsráðherra, um niðurstöður ríkisreiknings.

Ríkisreikningur 2018 er nú birtur í annað sinn í samræmi við ákvæði laga um opinber fjármál. Unnið er að innleiðingu nýrra reikningsskila eftir þriggja ára áætlun sem gert er ráð fyrir að verði að fullu komin til framkvæmda við framlagningu ríkisreiknings 2019.

„Efnahagsreikningur sem tók umtalsverðum breytingum í ársbyrjun 2017 þegar m.a. farið var eignfæra varanlega rekstrarfjármuni gefur nú góða heildarmynd af eignum, skuldum og eiginfjárstöðu ríkissjóðs. Heildareignir í árslok 2018 eru 2.224 ma.kr., skuldir 1.611 ma.kr og eigið fé 613 ma.kr. sem er hækkun um 117 ma.kr,“ segir ennfremur í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK