Vilja að rannsóknin verði úrskurðuð ólögmæt og að henni verði hætt

mbl.is/Rósa Braga

Stjórn Eimskips ákvað í dag að leggja fram kröfu skv. 102. gr. laga um meðferð sakamála, þess efnis að rannsókn Samkeppniseftirlitsins á félaginu og samstæðufélögum þess, sem staðið hefur yfir í tæp tíu ár, verði hætt. Krafan verður lögð fram í fyrramálið hjá Héraðsdómi Reykjavíkur.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

Þar segir, að Eimskip reisi kröfur sínar meðal annars á því að rannsókn Samkeppniseftirlitsins hafi formlega verið felld niður í júní 2015.

„Þá byggi rannsóknin á ólögmætri haldlagningu gagna og að brotið hafi verið gegn hlutlægnisskyldu Samkeppniseftirlitsins og réttindum Eimskips við rannsóknina. Auk þess hafi Samkeppniseftirlitið í raun sinnt lögreglurannsókn sem því er óheimilt að gera samkvæmt lögum. Vegna athafna sinna verði starfsmenn Samkeppniseftirlitsins að teljast vanhæfir í skilningi stjórnsýslulaga.

Kröfurnar byggjast enn fremur á því að rannsókn Samkeppniseftirlitsins beinist að röngum lögaðilum vegna verulegs hluta þess tímabils sem til rannsóknar er. Þá hafi framkvæmd rannsóknarinnar verið með þeim hætti að stór hluti þeirra meintu brota sem til rannsóknar eru teljist fyrnd,“ segir í tilkynningunni. 

Þá kemur fram, að þessir ágallar á rannsókninni séu með þeim hætti að rannsókn Samkeppniseftirlitsins sé ólögmæt og því beri að fella hana niður.

Enn fremur hefur Eimskip samhliða skrifað bréf til stjórnar Samkeppniseftirlitsins þar sem vakin sé athygli á þeim starfsháttum Samkeppniseftirlitsins sem kröfur Eimskips byggja á.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK