Íslandspóstur stefnir á sölu Samskipta

Birgir Jónsson forstjóri Íslandspósts.
Birgir Jónsson forstjóri Íslandspósts.

Íslandspóstur undirbýr nú söluferli á prentsmiðjunni Samskiptum, en salan er hluti af endurskipulagningu Íslandspósts. Forstjóri Íslandspósts segir í tilkynningu að prentsmiðjurekstur sé ekki hluti af kjarnarekstri félagsins og því ákveðið að selja reksturinn.

Íslandspóstur mun fá óháða matsaðila til að verðmeta félagið og taka saman sölugögn, en fram kemur í tilkynningunni að áhersla sé lögð á að ferlið taki sem skemmstan tíma og mun auglýsing um söluferlið birtast á næstu vikum.

Haft er eftir Birgi Jónssyni, forstjóra Íslandspósts, að það sé hluti af allsherjarendurskipulagningu Íslandspósts að líta á alla hluta rekstursins og meta hvað þjóni hagsmunum félagsins til framtíðar. „Samskipti voru keypt árið 2006 þegar aðstæður voru aðrar og Íslandspóstur var að leita eftir viðskiptatækifærum til að styrkja sig til framtíðar enda lá þá þegar fyrir að vægi hefðbundinna bréfa myndi minnka í starfseminni. Tilkoma og vöxtur netverslana hefur haft það í för með sér að meginstarfsemi Íslandspósts er í pakkasendinum sem og auðvitað bréfadreifingu. Við lítum einfaldlega svo á núna að prentsmiðjurekstur sé ekki hluti af kjarnastarfsemi Íslandspósts og höfum því ákveðið að setja fyrirtækið á sölu,“ er haft eftir honum.

Segir hann ákvörðunina um söluna vera hluta af þeirri vegferð að reka Íslandspóst á sem hagkvæmastan hátt, minnka yfirbyggingu og bæta þjónustu.

Birgir var ráðinn nýr forstjóri Íslandspósts fyrir um mánuði og hefur strax verið ráðist í ýmsar breytingar á rekstri félagsins. Þannig hefur framkvæmdastjórum þegar verið fækkað og flytja á höfuðstöðvar félagsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK