Auður Inga ráðin markaðsstjóri Advania

Auður Inga Einarsdóttir.
Auður Inga Einarsdóttir. Ljósmynd/Aðsend

Auður Inga Einarsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður markaðsmála og stafrænnar miðlunar hjá Advania.

Auður var áður forstöðumaður notendalausna fyrirtækisins og bar meðal annars ábyrgð á vefverslun Advania, innkaupum á vélbúnaði og þjónustu á sviði notendabúnaðar. Hún hóf störf sem sölustjóri hjá Advania árið 2012. Hún hefur því langa og góða reynslu hjá Advania og hefur gengt fleiri ábyrgðastöðum á þeim tíma.

Þar áður starfaði Auður hjá Vodafone frá árinu 2004, síðast sem rekstrarstjóri verslana fyrirtækisins, að því er segir í tilkynningu.

Hún er með BS-gráðu í viðskiptafræði og meistaragráðu í forystu og stjórnun.

Auður tekur við starfinu af Sesselíu Birgisdóttur og stýrir áframhaldandi uppbyggingu Advania í stafrænu sölu- og markaðsstarfi.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK