Skoða flug frá Kína til Íslands

Frá Keflavíkurflugvelli.
Frá Keflavíkurflugvelli. mbl.is/Eggert

Kínverska flugfélagið Tinajin Airlines hefur sótt um þrjá afgreiðslutíma í viku á Keflavíkurflugvelli fyrir næsta vetur. Gert er ráð fyrir flugi frá kínversku borginni Wuhan til Helsinki og þaðan rakleiðis til Íslands.

Þetta kemur fram á vef Túrista.

Þar segir enn fremur að þó að flugfélagið fái afgreiðslutíma sem það hefur óskað eftir, í Helsinki, Wuhan og á Keflavíkurflugvelli, þá sé ekki öruggt að óbeina Asíuflugið verði að veruleika.

Ekki er hægt að bóka flug til Íslands á vefsíðu Tinajin Airlines eins og staðan er í dag. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK