Icelandair deili bótum með farþegum

Samtökin segja að farþegar sem fljúgi með staðgengdarflugvélum Icelandair njóti …
Samtökin segja að farþegar sem fljúgi með staðgengdarflugvélum Icelandair njóti ekki þeirra þæginda sem Icelandair stæri sig af í auglýsingum.

Neytendasamtökin fara fram á að farþegar Icelandair, sem neyðst hafa til að fljúga með staðgengdarflugvélum félagsins, fái hlutdeild í væntanlegum bótum sem Boeing greiðir félaginu vegna kyrrsetningar á 737 MAX-vélunum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Neytendasamtökunum, en þar segir að farþegar sem fljúgi með staðgengdarflugvélum Icelandair njóti ekki þeirra þæginda sem Icelandair stæri sig af í auglýsingum.

Að sama skapi hvetja Neytendasamtökin alla félagsmenn sem hafa flogið með lággæðaflugvélum Icelandair að geyma brottfararspjöld sín og kvittun fyrir kaupum, komi til þess að samtökin sæki bætur til Icelandair.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK