Nýr framkvæmdastjóri fjármálasviðs

Ólöf Hildur Pálsdóttir er nýr framkvæmdastjóri fjármálasviðs Advania Data Centers.
Ólöf Hildur Pálsdóttir er nýr framkvæmdastjóri fjármálasviðs Advania Data Centers. Ljósmynd/Aðsend

Ólöf Hildur Pálsdóttir er nýr framkvæmdastjóri fjármálasviðs Advania Data Centers. Ólöf hefur hafið störf hjá félaginu en hún hefur viðamikla reynslu af fjármálastýringu og hefur undanfarið starfað sem sjálfstæður fjármálaráðgjafi og setið í stjórnum félaga, meðal annars Regins.

Greint er frá ráðningu Ólafar í fréttatilkynningu.

Áður starfaði Ólöf í um 20 ár hjá Arion banka og forvera hans, til að mynda sem stjórnandi á fyrirtækjasviði. Almennt hefur starfsferill hennar snúist um ákvarðanir um fjárfestingar og lánveitingar, en jafnframt greiningarvinnu og samningagerð. Ólöf hefur jafnframt reynslu af straumlínustjórnun og sat í ýmsum innri ákvörðunarnefndum innan bankans.

Fram kemur í fréttatilkynningunni að Advania Data Centers eigi og reki tvö öflug gagnaver. Þau séu vöktuð allan sólarhringinn og hýsi tölvubúnað og ofurtölvur.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK