Kynna afkomu Icelandair

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, mun kynna afkomu félagsins á …
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, mun kynna afkomu félagsins á fundinum. mbl.is/Kristinn Magnússon

Opinn kynningarfundur Icelandair Group fyrir markaðsaðila og hluthafa stendur nú yfir á Reykjavik Natura-hótelinu. Munu Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair Group, og Eva Sóley Guðbjörnsdóttir framkvæmdastjóri fjármála kynna afkomuna á fundinum og svara spurningum ásamt öðrum stjórnendum félagsins.

Greint var frá því í gær að Icelanda­ir hefði tapað um 89,4 millj­ón­um Banda­ríkja­dala, um 11 millj­örðum króna, á fyrstu sex mánuðum árs­ins sam­kvæmt hálfs­árs­upp­gjöri fé­lags­ins sem birt var í kvöld. Eykst tap fé­lags­ins frá sama tíma­bili í fyrra því um nærri 50%.

Haft var eftir Boga í frétta­til­kynn­ingu að staðan með MAX-vél­arn­ar frá Boeing sé „for­dæma­laus“ og hafi haft „veru­leg áhrif á rekst­ur og af­komu fé­lag­ins“.




mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK