4,4% atvinnuleysi á öðrum ársfjórðungi

Atvinnuþátttaka á öðrum ársfjórðungi 2019 var að jafnaði 82,9% af …
Atvinnuþátttaka á öðrum ársfjórðungi 2019 var að jafnaði 82,9% af mannfjölda, eða að meðaltali um 212.900 manns. mbl.is/​Hari

Mælt at­vinnu­leysi var að meðaltali 4,4% á öðrum árs­fjórðungi 2019, samkvæmt tölum frá Hagstofunni. Atvinnuþátttaka á öðrum ársfjórðungi var að jafnaði 82,9% af mannfjölda, eða að meðaltali um 212.900 manns. 

Að meðaltali töldust 9.400 manns vera atvinnulausir. Á sama tíma voru um 6.200 störf laus á íslenskum vinnumarkaði samkvæmt starfaskráningu Hagstofunnar eða um 2,7% starfa, samanber áður útgefnar tölur. Atvinnulausir voru því um einn og hálfur um hvert laust starf samanborið við tveir á móti einu starfi á fyrsta ársfjórðungi 2019. Á öðrum ársfjórðungi var fjöldi starfandi fólks um 203.500, eða 79,2% af mannfjölda.

Um 44.000 manns töldust utan vinnumarkaðar á öðrum ársfjórðungi 2019. Flestir þeirra sem eru utan vinnumarkaðar, eða 13.700 manns (31,5%), skilgreina sig sem eftirlaunaþega. Þar á eftir voru þeir sem skilgreina sig sem öryrkja eða fatlaða, um 9.800 manns að meðaltali eða 22,2%.

Á öðrum ársfjórðungi 2019 voru að jafnaði 184.500 manns á aldrinum 16-74 ára við vinnu í hverri viku ársfjórðungsins og var meðalheildarfjöldi vinnustunda þeirra 39,7 klukkustundir. Þeir sem voru í fullu starfi unnu ívið meira eða að jafnaði um 43 stundir á viku, en heildarfjöldi vinnustunda í hlutastarfi var að jafnaði um 25,9 klukkustundir á viku.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK