Fær sem nemur lágmarkslaunum í 40 ár

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR.
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR. mbl.is/Kristinn Magnússon

„Þetta var greiðsla fyrir að hætta störfum vegna þess að afkoma bankans, undir hans stjórn, var undir væntingum,“ segir Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, á Facebook-síðu sinni í dag þar sem hann gerir starfslokagreiðslu Höskuldar H. Ólafssonar, fyrrverandi bankastjóra Arion banka, upp á 150 milljónir króna að umtalsefni sínu.

„Það jafngildir 312.500 kr. launum, á mánuði, í 40 ár. Því má ætla að eftirlaunaréttindi bankastjórans fráfarandi hafi jafnframt aukist, með einni greiðslu, sem nemur vinnuframlagi láglaunafólks, í fullu starfi, í 40 ár eða heila starfsævi. Mánaðarlaun hans voru árið 2018 rúmar 5,6 milljónir á meðan lágmarks tekjutrygging láglaunafólks, fyrir fullt starf, var rétt að merja 300 þúsund kallinn,“ segir Ragnar enn fremur. 

„Ef við setjum þetta í samhengi við þau réttindi sem ávinnast innan lífeyrissjóðakerfisins, sem eru 74 til 76% af meðaltekjum, er hægt að álykta sem svo að orðið samtrygging eigi ekki við þegar kemur að lífeyrissjóðum, nema þá helst sem öfugmæli. Öfugt við skattkerfið sem þó reynir að tryggja öllum jafnan aðgang að grunnþjónustu óháð tekjum eða stöðu.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK