Ráðgjafarfyrirtækið Aton og auglýsingastofan Jónsson & Le‘macks hafa nú sameinast undir nafninu Aton.JL. Í fréttatilkynningu frá hinu nýja fyrirtæki segir að með samrunanum verði til þekkingarfyrirtæki af nýrri tegund, „sérhæft samskiptafélag, sem veitir ráðgjöf á sviði samskipta og stefnumótunar”.
„Nýja félagið gerir okkur kleift að þjónusta viðskiptavini okkar betur og á sama tíma mæta þörf sem við höfum orðið vör við á markaðnum,” er haft eftir Ingvari Sverrissyni framkvæmdastjóra Aton JL í tilkynningunni.
„Við lítum á sameininguna sem rökrétt og spennandi skref. Jónsson & Le‘macks hefur á síðustu misserum verið að þróast úr því að vera hefðbundin auglýsingastofa í að sinna ráðgjöf og skipulagðri upplýsingagjöf,” sagði Agnar Tr. Lemacks, stjórnarformaður Aton.JL:
Starfsmenn Aton.JL verða með sameiningunni 42 talsins, 30 í Reykjavík og 12 í Belgrad í Serbíu. Framkvæmdastjóri hins nýja félags verður Ingvar Sverrisson sem er jafnframt eigandi ásamt Agnari Tr. Lemacks, stjórnarformanni, Dr. Hugin Frey Þorsteinssyni, ráðgjafa og Viggó Erni Jónssyni, ráðgjafa.