Jón Þorsteinn nýr framkvæmdastjóri hjá Ölgerðinni

Ölgerðin Egill Skallagrímsson er að Grjóthálsi.
Ölgerðin Egill Skallagrímsson er að Grjóthálsi. mbl.is/Júlíus Sigurjónsson

Jón Þorsteinn Oddleifsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri fjármála- og mannauðssviðs Ölgerðarinnar Egils Skallagrímssonar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

Jón Þorsteinn er fæddur árið 1975, er stúdent frá Menntaskólanum að Laugarvatni og hagfræðingur með framhaldspróf í fjármálum fyrirtækja frá Háskóla Íslands.

Hann hefur víðtæka reynslu af fjármálamarkaði en síðustu ár hefur hann sinnt viðskiptaþróun hjá Landsbréfum sem er sjóðastýringafyrirtæki Landsbankans.

Á árunum 2008 til 2010 var Jón Þorsteinn fjármálastjóri nýja Landsbankans og þar áður var hann forstöðumaður fjárstýringar Landsbankans. Þá hefur hann sinnt fjármálaráðgjöf til fyrirtækja og stofnana sem sjálfstæður ráðgjafi.

Jón Þorsteinn er kvæntur Helgu Margréti Pálsdóttur matvælafræðing og eiga þau fjóra syni.

Jón Þorsteinn Oddleifsson hefur verið ráðinn framkvæmdarstjóri fjármála- og mannauðssviðs …
Jón Þorsteinn Oddleifsson hefur verið ráðinn framkvæmdarstjóri fjármála- og mannauðssviðs Ölgerðarinnar Egill Skallagrímsson Ljósmynd/Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK