Stýrivextir lækka í 3,25%

Stýrivextir halda áfram að lækka.
Stýrivextir halda áfram að lækka. mbl.is/Golli

Meg­in­vext­ir Seðlabanka Íslands, vext­ir á 7 daga bundn­um inn­lán­um eða stýrivextir, verða lækkaðir um 0,25 pró­sent­ur og verða sam­kvæmt því 3,25%. Þetta kemur fram í nýrri ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands. 

Ef litið er á vaxtakúrfu meg­in­vaxta Seðlabank­ans sést að þeir hafa lægst farið í 3,625 pró­sent­ur snemma árs 2011. Í árs­byrj­un 2009 voru þeir aft­ur á móti 18%. Síðustu mánuði hafa vextirnir lækkað um 1,25 prósentur. 

Þjóðarbúið mögulega að ná viðspyrnu

Í yfirlýsingu peningastefnunefndar segir að samkvæmt bráðabirgðatölum þjóðhagsreikninga hafi haldið áfram að hægja á hagvexti á fyrri hluta þessa árs þótt hann hafi verið heldur meiri en gert var ráð fyrir í ágústhefti Peningamála. Meiri vöxtur skýrist einkum af hagstæðara framlagi utanríkisviðskipta þar sem eftirspurn beinist í meira mæli að innlendri framleiðslu og vegur það upp á móti samdrætti í útflutningi. Leiðandi vísbendingar benda til þess að áfram muni hægja á vexti efnahagsumsvifa en sjá má merki þess að þjóðarbúið sé mögulega að ná viðspyrnu.

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri skýrir ákvörðun peningastefnunefndar í dag.
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri skýrir ákvörðun peningastefnunefndar í dag. mbl.is/​Hari

3,1% verðbólga á þriðja ársfjórðungi

Verðbólga mældist 3,1% á þriðja ársfjórðungi og hjaðnaði milli fjórðunga. Undirliggjandi verðbólga jókst hins vegar milli mánaða í september. Mæld verðbólga var lítillega minni en spáð var í ágúst og horfur eru á að hún hjaðni hraðar en gert var ráð fyrir. Gengi krónunnar hefur hækkað og verðbólguvæntingar lækkað frá síðasta fundi nefndarinnar. Taumhald peningastefnunnar hefur því aukist lítillega.

„Nýleg þróun bendir til þess að efnahagsumsvif hafi verið þróttmeiri en gert hefur verið ráð fyrir. Hins vegar eru horfur fram undan óvissar, sérstaklega í alþjóðlegum efnahagsmálum. Því gæti dregið hraðar úr innlendum hagvexti en nú er búist við,“ segir í yfirlýsingu peningastefnunefndar. 

Peningastefnan mun á næstunni ráðast af samspili þróunar efnahagsumsvifa annars vegar og verðbólgu og verðbólguvæntinga hins vegar.

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri skýrir ákvörðun peningastefnunefndar á fundi í Seðlabankanum sem hefst klukkan tíu og hægt er að fylgjast með í beinni hér að neðan: 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK