Ráðin bókhaldsfulltrúi Eignaumsjónar

Svanhvít Ósk Jónsdóttir.
Svanhvít Ósk Jónsdóttir.

Vegna aukinna umsvifa hefur Svanhvít Ósk Jónsdóttir verið ráðin sem bókhaldsfulltrúi hjá fjármálasviði Eignaumsjónar.

Í tilkynningu frá Eignaumsjón segir að Svanhvít Ósk hafi starfað hjá Sjóvá áður en hún kom til starfa hjá Eignaumsjón. Þar sinnti hún m.a. áhættustýringu, gæðamálum og bókhaldi. Hún er með próf frá Tryggingaskóla SFF, sem er í samstarfi við Háskólann í Reykjavík. Hún er einnig með próf sem viðurkenndur bókari og útskrifaðist sem rekstrarfulltrúi frá skrifstofubraut Menntaskólans Í Kópavogi.

Í tilkynningunni segir einnig að Eignaumsjón sérhæfi sig í þjónustu við húsfélög og rekstrarfélög atvinnuhúsnæðis með það að markmiði að gera rekstur fasteigna bæði markvissari og ódýrari, auka upplýsingaflæði til eigenda og hússtjórna og auðvelda störf þeirra.

Starfsmenn Eignaumsjónar eru nú 22 talsins, þar af eru 10 starfandi hjá fjármálasviði félagsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK