Hjálmar Gíslason, stofnandi hugbúnaðarfyrirtækisins GRID, segir við ViðskiptaMoggann að fyrirtækið geti, gangi áætlanir þess eftir, aflað árstekna upp á 10-15 milljarða króna á næstu 7-10 árum.
GRID býr til skýrslugerðar- og útgáfutól sem vinnur með töflureiknum á borð við Excel, og hyggst setja vöruna á markað eftir áramót. 2.500 manns eru á biðlista fyrir prófunarútgáfu sem kemur út á næstu vikum.
GRID var stofnað fyrir rúmu ári og hefur samtals hlotið 4,5 milljóna bandaríkjadala fjármögnun. Mögulegur notendahópur er talinn í hundruðum milljóna, að því er fram kemur í umfjöllun um mál þetta í ViðskiptaMogganum í dag.