Sameinast í svefnheilsu

Pétur Már Halldórsson, framkvæmdastjóri Nox Medical.
Pétur Már Halldórsson, framkvæmdastjóri Nox Medical. mbl.is/Hari

Íslenska lækningatækjafyrirtækið Nox Medical og systurfélag þess, bandaríska fyrirtækið FusionHealth, hafa sameinast undir nafninu Nox Health. Með sameiningunni verður til eitt stærsta fyrirtæki heims í svefnheilsugeiranum en velta þess á þessu rekstrarári er rúmir 4 milljarðar króna. Hjá félaginu starfa um 200 manns, þar af rúmlega 50 á íslandi.

„Vöxtur Nox Medical hefur verið jafn og stígandi frá því að fyrirtækið var stofnað. Við höfum náð að byggja starfsemi Nox á örum innri vexti en jafnframt viðhaldið góðri arðsemi. Með sameiningunni leggjum við grunninn að enn frekari vexti félagsins. Hluti af því verkefni felst í að taka yfir sölustarfsemi okkar vestanhafs, sem hingað til hefur verið í höndum dreifingaraðila. Nú byggjum við upp eigin sölustarfsemi og sölunet sem nær um öll Bandaríkin,“ segir Pétur Már Halldórsson, framkvæmdastjóri Nox Medical, í fréttatilkynningu.

„Sameiningin við FusionHealth, sem nú er orðið systurfélag Nox Medical, gerir okkur kleift að auka vöruframboð okkar og bjóða upp á þjónustulausnir í svefnheilsugeiranum. Þannig náum við til fleiri viðskiptavina, getum boðið upp á fleiri vörur og þar með aukið getu okkar til að þjóna betur þörfum markaðarins fyrir tæknilausnir sem gera heilbrigðiskerfum og einstaklingum betur kleift að takast á við það risavaxna vandamál sem ófullnægjandi svefn er orðið,“ segir Pétur.

Sameinað fyrirtæki er með starfsstöðvar á Íslandi, í Atlanta og Boulder í Colarado í Bandaríkjunum. „Nox Medical er íslenskt fyrirtæki sem byggir á íslensku hugviti og mannauði sem liggur í fólkinu sem hér starfar. Á síðustu árum hefur starfsmönnum hér á Íslandi fjölgað úr 7 í rúmlega 50 og við höfum náð að byggja upp framúrskarandi liðsheild sem á sér enga hliðstæðu í okkar geira. Starfsemi okkar byggir á þeim mannauði sem hér hefur myndast og við munum halda áfram að bæta við þann mikla auð. Þekkingarfyrirtæki eins og Nox, Marel og Össur gegna stóru hlutverki í íslensku samfélagi enda eru rannsóknir og þróun veigamikill þáttur í starfi þessara fyrirtækja sem mikilvægt er að hlúa að,“ segir Pétur Már enn fremur í tilkynningu.

Sigurjón Kristjánsson er framkvæmdastjóri FusionHealth og einn stofnenda fyrirtækisins. „Með sameiningunni verður til eitt stærsta fyrirtæki í svefnheilsugeiranum með starfsemi út um allan heim. Fyrirtækin hafa unnið náið saman síðustu ár en með sameiningunni opnast á gríðarleg tækifæri til framtíðar litið,“ segir Sigurjón.

Samhliða sameiningunni mun Nox Medical, í fyrsta sinn í sögu fyrirtækisins, sækja nýtt hlutafé inn í reksturinn og breytingar verða á hluthafahópi. Félagið er engu að síður enn að meirihluta í eigu stofnenda og stjórnenda Nox og Fusion. „Nox Medical hefur aldrei tekið lán til rekstrarins og hlutafé þess hefur ekki verið aukið svo að segja frá stofnun þess. Þó að það sé í raun ekki nauðsynlegt á þessum tímapunkti telja stjórnendur sameinaðs félags mikinn styrk felast í því að leggja af stað í næsta vaxtarferli með sterka sterkan efnahag. Það gerir hið sameinaða fyrirtæki betur í stakk í búið til að takast á við þau tækifæri sem framundan eru. Nú stefnir í að velta sameinaðs félags á yfirstandandi rekstrarári verði rúmir 4 milljarðar króna og félagið er algerlega skuldlaust. Í því felst bæði frelsi og mikill styrkur,” segir Pétur Már í tilkynningu.

Framtakssjóður í rekstri Alfa Framtaks kemur að hlutafjáraukningunni og eignast tæplega 13% hlut í Nox Health. Sjóðurinn fjárfestir í hlutafé fyrirtækja og beitir sér markvisst fyrir virðisaukningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK