Lyfja hefur opnað nýtt apótek í Grafarholti en það er staðsett við hliðina á verslun Krónunnar á Þjóðhildarstíg 2.
Í versluninni má finna ýmsar vörur sem stuðla að almennu heilbrigði og þar með talið sérvaldar vörur frá Heilsuhúsinu. Einnig er hægt að fá blóðþrýstingsmælingu gegn vægu gjaldi og viðtal við lyfjafræðing án tímapantana, að því er fram kemur í tilkynningu.
„Við erum spennt að fá tækifæri til að að þjónusta íbúa Grafarholts og nágrennis,“ er haft eftir Ingibjörgu Arnardóttur lyfsala í tilkynningu.