Velta innlendra greiðslukorta jókst um 1,6% að raunvirði milli ára í október. Velta í verslunum hér á landi jókst um 3,5% milli ára miðað við fast verðlag en dróst saman um 4,8% í viðskiptum erlendis miðað við fast gengi.
Þetta kemur fram í Hagsjá Landsbankans.
Til samanburðar var vöxturinn 13% erlendis og 3% í verslunum hér á landi í október í fyrra. Verulega hefur hægt á kortaveltu erlendis og er vöxturinn í október því eingöngu kominn til vegna aukningar í kortaveltu í verslunum innanlands.
Fyrir ári var framlag erlendis og í verslunum hér á landi jafn mikið til vaxtarins í kortaveltu sem þá mældist 5% milli ára. Í ár hefur orðið breyting á þeirri þróun í takt við færri utanlandsferðir Íslendinga en brottfarir þeirra um Leifsstöð voru í október 11% færri en í október í fyrra.
Minna er því verslað erlendis eða í gegnum erlendar netverslanir, og meira verslað hér á landi sem hefur að óbreyttu orðið hagstæðara í takt við veikara gengi íslensku krónunnar. Miðað við þróunina síðustu mánuði má því gera ráð fyrir því að jólaverslunin í ár fari í auknum mæli fram hér á landi og verslunarferðir til útlanda fyrir jólin verði færri en í fyrra, að því er kemur fram í Hagsjánni.
Innflutningur á neysluvörum jókst verulega í september, sem gæti skýrt að einhverju leyti aukna kortaveltu í október. Verðmæti innfluttra neysluvara jókst alls um 7% milli ára sem er mesti vöxtur sem hefur mælst síðan í október í fyrra.
Mestu munar um innflutning á varanlegum neysluvörum, svo sem heimilistækjum, sem jókst um 20% milli ára og skýrir 4% af vextinum.
Samkvæmt Hagsjánni eru því vísbendingar um að ekki sé um algjöra stöðnun í neyslu að ræða og jafnvel gæti þetta gefið til kynna kraftmeiri vöxt í einkaneyslu á seinni hluta árs en áður hefur verið spáð.