OR stofnar nýtt félag um kolefnisbindingu

CarbFix-kolefnisbindingin hefur verið nýtt við Hellisheiðarvirkjun síðustu ár.
CarbFix-kolefnisbindingin hefur verið nýtt við Hellisheiðarvirkjun síðustu ár. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Orkuveita Reykjavíkur hefur samþykkt, með fyrirvara um staðfestingu eigenda OR, að stofna opinbert hlutafélag um kolefnisbindingaraðferðina CarbFix, en hún hefur verið nýtt við Hellisheiðarvirkjun síðustu ár. Nýja félagið verður ekki hagnaðardrifið.

Í tilkynningu frá OR kemur fram að markmið OR með því að skilja verkefnið frá kjarnastarfsemi fyrirtækisins sé að koma í veg fyrir að vaxandi starfsemi CarbFix trufli annað rannsóknar- og nýsköpunarstarf innan OR, afmarka og draga úr fjárhagslegri áhættu fyrir grunnþjónustu OR, ná auknum árangri í loftslagsmálum og standa vörð um hugverkarétt að verkefninu.

Nýja félagið verður alfarið í eigu OR.

CarbFix-verkefnið var sett á fót sem alþjóðlegt vísindasamstarf OR, Háskóla Íslands og erlendra vísindastofnana árið 2007. Aðferðin er enn í þróun og OR leiðir nú tvö fjölþjóðleg rannsóknar- og nýsköpunarverkefni, sem eru afsprengi CarbFix; CarbFix2 og GECO. OR og samstarfsaðilar að verkefnunum hafa hlotið margvíslega alþjóðlega styrki til þróunar á aðferðinni, mest úr rannsóknaráætlunum ESB. Þannig fékk GECO-verkefnið um tvo milljarða króna úr Horizon 2020 áætlun ESB. Stefnt er að því að nýja félagið sæki áfram um slík framlög.

Kostnaður við kolefnisförgun við Hellisheiðarvirkjun með CarbFix-aðferðinni er um 3.000 krónur á hvert tonn koltvíoxíðs, að því er fram kemur í tilkynningunni. Vonast er til að með frekari þróun aðferðarinnar og stærðarhagkvæmni geti kostnaðurinn víða orðið enn lægri en þetta er ívið lægri kostnaður en við að kaupa losunarheimildir á evrópskum markaði þessa dagana. Verðið er sveiflukennt en er nú um 3.300 krónur fyrir tonnið.

Brynhildur Davíðsdóttir, stjórnarformaður OR, segir í tilkynningunni að OR líti á verkefnið sem samfélagslegan ábyrgðarhluta. „Loftslagsváin er viðfangsefni alls mannkyns. Sem þegn í samfélagi þjóðanna sem styður við Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna lítur OR svo á að það sé samfélagslegur ábyrgðarhluti að greiða leið sem flestra til að nýta sér CarbFix-aðferðina. Fyrirtækið, sem við leggjum til að verði stofnað um verkefnið, verður því ekki hagnaðardrifið. Við gerum heldur ekki ráð fyrir að niðurgreiða starfsemina því einn helsti styrkur CarbFix-aðferðarinnar er að kostnaður við innleiðingu hennar er samkeppnisfær við verð á losunarheimildum eins og það er í dag.“

Brynhildur Davíðsdóttir, stjórnarformaður OR.
Brynhildur Davíðsdóttir, stjórnarformaður OR. Ljósmynd/Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK