Gengi Icelandair hækkar

Bréf Icelandair hafa hækkað í viðskiptum í morgun.
Bréf Icelandair hafa hækkað í viðskiptum í morgun.

Gengi hlutabréfa í Icelandair group hefur hækkað um tæplega 3% í viðskiptum í morgun í rúmlega 131 milljón króna viðskiptum. Stendur gengi þeirra nú í 8,05 krónum á hlut.

Engar tilkynningar hafa borist frá Icelandair í dag sem skýra hækkunina, en fyrr í dag var greint frá því að félagið Play, sem stefnir á samkeppni við Icelandair í flugi til og frá landinu á næstunni, hefði ekki greitt starfsfólki sínu laun um mánaðamótin. Þá greindi Fréttablaðið frá því í morgun að stofnendur Play horfðu nú til þess að fjárfestar myndu eignast allt að 70% í flugfélaginu í stað 50% áður.

Hlutabréf í Eimskip hafa hækkað um 1,7% það sem af er degi og í Högum um 1%. Hins vegar hafa bréf í Brim og Origo lækkað um rúmlega 0,9%.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK