Styrmir ráðinn framkvæmdastjóri hjá Arion

Styrmir Sigurjónsson, nýr framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs Arion banka.
Styrmir Sigurjónsson, nýr framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs Arion banka. Ljósmynd/Aðsend

Arion banki hefur ráðið Styrmi Sigurjónsson sem framkvæmdastjóra upplýsingatæknisviðs bankans, en hann mun hefja störf 17. febrúar á næsta ári.  

Frá árinu 2009 hefur Styrmir starfað hjá Natera í Bandaríkjunum, en Natera sérhæfir sig á sviði erfðagreiningar og er skráð í Nasdaq CM kauphöllina. Styrmir hefur frá árinu 2012 gegnt ýmsum stjórnunarstörfum hjá Natera, verið framkvæmdastjóri rannsóknar og vöruþróunar frá árinu 2017 og stýrt yfir 200 manna þróunarteymi sem er staðsett í mörgum löndum. Áður en Styrmir höf störf hjá Natera starfaði hann hjá Straumi fjárfestingarbanka, FL Group og fjárfestingarbankanum Citi.

Styrmir er með doktors- og meistarapróf í rafmagnsverkfræði frá Stanford og CS-próf í rafmagns- og tölvuverkfræði frá Háskóla Íslands. Styrmir er giftur Berglindi Erlingsdóttur mannfræðingi og eiga þau þrjú börn.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK