Icelandair gerir ekki ráð fyrir MAX í sumar

Icelandair gerir ekki ráð fyrir Boeing MAX-vélum næsta sumar í ljósi nýrra frétta frá Boeing af því ferli sem nú stendur yfir í samvinnu við alþjóðaflugmálayfirvöld við að tryggja öryggi Boeing-737 MAX-flugvéla og koma þeim aftur í rekstur. 

Vegna ráðstafana sem félagið hefur þegar gripið til verða áhrif á útgefna flugáætlun félagsins óveruleg en um háannatíma í rekstri flugfélagsins er að ræða.

Ástæður þess eru að hún var sett upp með það að leiðarljósi að takmarka áhrif frekari tafa á afléttingu kyrrsetningarinnar. Búið er að leigja inn þrjár Boeing 737-800-vélar og ákveðnum fjölda Boeing 757-véla verður haldið lengur í flota félagsins en áður hafði verið gert ráð fyrir.

„Ljóst er að fjárhagsleg áhrif áframhaldandi kyrrsetningar verða mun minni á árinu 2020 en þau voru árið 2019. Skýrist það af ofangreindum þáttum auk þess sem gengið hefur verið frá leigu viðbótarvéla með meiri fyrirvara nú en árið 2019 og leigukjör því mun hagstæðari. Áhafnir Icelandair munu jafnframt fljúga leiguvélunum en ekki áhafnir leiguflugfélaga sem leigðar voru inn með skömmum fyrirvara árið 2019. Félagið hefur þannig haft tækifæri til að skipuleggja rekstur sinn með þessa sviðsmynd í huga.

Áhersla Icelandair á þessu ári verður líkt og á síðasta ári á ferðamannamarkaðinn til Íslands. Félagið gerir ráð fyrir að flytja að lágmarki jafnmarga farþega til Íslands á árinu 2020 og árið 2019.

Icelandair Group og Boeing hafa tvívegis gert bráðabirgðasamkomulag um skaðabætur. Viðræður um frekari skaðabætur standa yfir og stefnir Icelandair Group að því að fá allt tjón vegna MAX-kyrrsetningarinnar bætt,“ segir í tilkynningu.



mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK