Mikil óvissa hjá Icelandair

Icelandair hefur á undanförnum dögum dregið úr flugframboði um allt að 30%. Líklegt er að dregið verði enn frekar úr flugframboði á meðan ferðatakmarkanir eru í gildi vegna útbreiðslu kórónuveirunnar og getur staðan breyst hratt. Óvissa ríkir um háannatíma sumarsins og þá eru fjárhagsleg áhrif útbreiðslu veirunnar á starfsemi félagsins enn óviss. 

Þetta kemur fram í tilkynningu sem Icelandair Group hefur sent frá sér í ljósi útbreiðslu veirunnar og ferðatakmarkana. 

Þar segir að þetta tvennt hafi haft veruleg áhrif á eftirspurn á mörkuðum Icelandair og hafi neikvæð áhrif á bókunarstöðu félagsins.

„Á síðustu dögum hefur félagið dregið úr flugframboði um allt að 30%. Líklegt er að dregið verði enn frekar úr flugframboði á meðan ferðatakmarkanir eru í gildi og staðan getur breyst hratt. Félagið heldur áfram að fylgjast grannt með stöðu mála og hefur gripið til ýmissa aðgerða í samráði við heilbrigðisyfirvöld til að tryggja heilsu og öryggi starfsfólks og farþega,“ segir í tilkynningunni. 

Þá segir að óvissa ríki um háannatíma sumarsins en félagið geri að óbreyttu ráð fyrir að draga úr flugframboði um að minnsta kosti 25% frá því sem áður hafði verið kynnt. Félagið muni þó leggja áherslu á að viðhalda þeim sveigjanleika sem þurfi til að geta brugðist hratt við eftir því hvernig eftirspurn þróast.

„Fjárhagsleg áhrif vegna útbreiðslu COVID-19-veirunnar á starfsemi félagsins eru enn óviss. Lausafjárstaða félagsins nam rúmum 39 milljörðum króna (301,6 milljónum dala) í árslok 2019 og er á svipuðum stað í dag. Ljóst er að útbreiðsla COVID-19-veirunnar mun hafa neikvæð áhrif á sjóðstreymi félagsins en unnið er að því að lágmarka þau áhrif, meðal annars með því að draga úr flugframboði og vinna með stéttarfélögum til að lækka launakostnað verulega,“ segir enn fremur í tilkynningu Icelandair. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK