Katrín og Magnús ný inn í stjórn Landsnets

Höfuðstöðvar Landsnets.
Höfuðstöðvar Landsnets. Ljósmynd/Landsnet

Katrín Olga Jóhannesdóttir og Magnús Þór Ásmundsson ganga inn í stjórn Landsnets. Þetta varð ljóst á aðalfundi félagsins sem haldinn var á föstudag. Út úr stjórninni gengu Ómar Benediktsson og Svana Helen Björnsdóttir.

Stjórnina skipa nú auk Katrínar og Magnúsar þau Svava Bjarnadóttir, Ólafur Rúnar Ólafsson og Sigrún Björk Jakobsdóttir stjórnarformaður.

Sigrún Björk segir spennandi tíma fram undan hjá Landsneti.

Uppbygging nýrrar kynslóðar byggðalínu sé hafin og með styrkingu flutningskerfisins dragi úr orkusóun með aukinni nýtingu á endurnýjanlegri orkuauðlind þjóðarinnar. Breyttar áherslur félagsins á samvinnu og samtali séu farnar að skila sér í betri skilningi milli Landsnets og samfélagsins á viðkomandi framkvæmdasvæðum.

„Þannig munum við ná árangri til framtíðar.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK