Cinta 2020 kaupir Cintamani

Verslun Cintamani á Akureyri.
Verslun Cintamani á Akureyri. mbl.is/Þorsteinn

Íslandsbanki hefur lokið söluferli á vörumerkinu Cintamani ásamt vörulager og léni félagsins. Kaupandi félagsins er Cinta 2020 ehf. og var kaupsamningur undirritaður í lok síðustu viku. Ekki kemur fram í tilkynningu hver sé eigandi Cinta 2020 ehf.

Cintamani á um 30 ára sögu í framleiðslu og sölu á útivistarfatnaði. Íslandsbanki hóf söluferli á Cintamani í lok janúar 2020 og var áhugasömum boðið að skila inn tilboðum fram í febrúar.

Verslun Cintamani í Garðabæ verður opnuð á næstu dögum auk þess sem vefverslun félagsins verður opnuð á nýjan leik. Þá hefur nýr eigandi tekið ákvörðun um að þeir viðskiptavinir sem áttu gjafabréf og innleggsnótur hjá félaginu geti nýtt þær hjá nýjum eigendum. Eru þeir aðilar hvattir til að hafa samband í gegnum netfangið gjafabref@cintamani.is. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslandsbanka.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK