Ráðin verkefnastjóri Jafnvægisvogar FKA

Thelma Kristín Kvaran hefur verið ráðin verkefnastjóri Jafnvægisvogar FKA.
Thelma Kristín Kvaran hefur verið ráðin verkefnastjóri Jafnvægisvogar FKA. Ljósmynd/Aðsend

Thelma Kristín Kvaran hefur verið ráðin verkefnastjóri Jafnvægisvogar FKA. Hún mun vinna náið með stjórnendum í fyrirtækjum, sveitarfélögum og stofnunum og þjónusta atvinnulífið í gegnum störf sín fyrir Jafnvægisvogina.

„Jafnvægisvogin er virkilega þarft verkefni og ég er full tilhlökkunar og þakklætis. Það er von mín að á komandi árum verði þetta verkefni hvatning til fyrirtækja og stofnana að sækjast eftir jöfnum áhrifum kvenna, því það er samfélagslegur ávinningur okkar allra,“ segir Thelma Kristín í tilkynningu. 

Miðar að því að auka jafnvægi kynja

Jafnvægisvogin er hreyfiaflsverkefni sem unnið er í samstarfi við forsætisráðuneytið, Sjóvá, Deloitte, Árvakur og PiparTBWA. Tilgangur verkefnisins er að auka jafnvægi kynja í efsta lagi stjórnunar fyrirtækja í íslensku viðskiptalífi og virkja íslenskt viðskiptalíf til að verða að fyrirmynd jafnréttis fyrir aðrar þjóðir.

Thelma Kristín er starfandi stjórnendaráðgjafi hjá ráðgjafarfyrirtækinu Intellecta og hefur umtalsverða reynslu á sviði stjórnunar. Thelma er með B.Sc. í viðskiptafræði frá Háskólanum á Bifröst og M.Sc. í mannauðsstjórnun frá Háskóla Íslands.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK