Icelandair lokar þremur hótelum til viðbótar

Reykjavík Natura við Reykjavíkurflugvöll er eitt þeirra hótela sem verður …
Reykjavík Natura við Reykjavíkurflugvöll er eitt þeirra hótela sem verður lokað á morgun. mbl.is/RAX

Þremur hótelum Icelandair Hotels verður lokað tímabundið frá og með morgundeginum. Þetta staðfestir Magnea Þórey Hjálmarsdóttir, framkvæmdastjóri Icelandair Hotels, í samtali við mbl.is.

Hótelin sem um ræðir eru Reykjavík Natura við Reykjavíkurflugvöll, Canopy á Smiðjustíg og Alda á Laugavegi. Þegar hafði verið tilkynnt lokun tveggja hótela, Konsúlats Reykjavík í Hafnarstræti og Reykjavík Marina við höfnina.

Magnea segir starfsfólk ekki missa vinnuna þrátt fyrir lokunina, en starfsmenn verða færðir til vegna lokunar. Aðspurð útilokar hún þó ekki að starfshlutfall einhverra kunni að verða minnkað. „Við hjálpumst öll að í þessu, en þetta verður bara að koma í ljós.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK