Seðlabankinn kaupir ríkisskuldabréf

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra á blaðamannafundi ríkisstjórnarinnar um helgina.
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra á blaðamannafundi ríkisstjórnarinnar um helgina. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands ákvað á aukafundi sínum í gær að Seðlabankinn myndi hefja bein kaup á skuldabréfum ríkissjóðs á eftirmarkaði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Seðlabanka Íslands en nánari upplýsingar verða birtar síðar.

„Horfur eru á að útbreiðsla COVID-19, aðgerðir til að hefta sjúkdóminn og efnahagslegar afleiðingar hans muni kalla á verulega aukningu útgjalda ríkissjóðs. Útlit er því fyrir að afkoma ríkissjóðs versni í ár og að hann þurfi að afla sér töluverðs lánsfjár með útgáfu ríkisbréfa. Að öðru óbreyttu dregur það lausafé úr umferð og þrýstir upp ávöxtunarkröfu ríkisskuldabréfa sem truflar eðlilega miðlun peningastefnunnar á sama tíma og aðgerðir Seðlabanka Íslands miða að því að létta á fjármálalegum skilyrðum heimila og fyrirtækja.

Peningastefnunefnd mun gera það sem þarf til að lausara taumhald peningastefnunnar miðlist með eðlilegum hætti til heimila og fyrirtækja,“ segir í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK