Útibúum Landsbankans nánast lokað

Til að fá afgreiðslu í útibúi Landsbankans er nauðsynlegt að …
Til að fá afgreiðslu í útibúi Landsbankans er nauðsynlegt að panta tíma fyrirfram. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Vegna herts samkomubanns og til að sporna gegn útbreiðslu kórónuveirunnar geta viðskiptavinir Landsbankans aðeins fengið afgreiðslu í útibúi ef erindið er mjög brýnt og ekki er hægt að leysa úr því með öðrum hætti, þ.e. í sjálfsafgreiðslu eða með samtali við Þjónustuver. Til að fá afgreiðslu er nauðsynlegt að panta tíma fyrirfram. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum.

Breytingarnar taka gildi í fyrramálið og gilda þar til samkomubanni hefur verið aflétt.

Í tilkynningu bankans segir að aðstæður í útibúum og afgreiðslum séu mjög misjafnar og með því að takmarka heimsóknir í útibú sé betur hægt að uppfylla skilyrði samkomubannsins og gæta að öryggi viðskiptavina og starfsfólks. Um leið fjölgi starfsfólki sem geti svarað fyrirspurnum sem koma í gegnum síma, tölvupóst og netspjall.

Viðskiptavinir er hvattir til að óska aðeins eftir afgreiðslu í útibúi er erindið er mikilvægt og ekki hægt að leysa úr því með öðrum hætti; með stafrænum þjónustuleiðum bankans, Landsbankaappinu, í netbankanum eða með samtali við Þjónustuver, með tölvupósti eða með því að senda fyrirspurn í gegnum netspjallið á landsbankinn.is.

Ef ekki reynist mögulegt að afgreiða erindið með þessum hætti þarf að bóka símtal við ráðgjafa.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK