Samið um markaðssetningu í 36 löndum

Hjá Alvotech starfa nú um 450 vísindamenn og sérfræðingar.
Hjá Alvotech starfa nú um 450 vísindamenn og sérfræðingar.

Lyfjafyrirtækið Alvotech hefur gert samstarfssamning við DKSH um markaðssetningu og sölu á samheitalyfi félagsins í Asíu.

Alvotech mun þróa og framleiða líftæknilyfið AVT02, sem hefur sömu virkni og gigtarlyfið Humira, sem er í dag eitt af söluhæstu lyfjum heims, samkvæmt því sem fram kemur í fréttatilkynningu frá Alvotech.

DKSH mun bera ábyrgð á markaðssetningu og sölu lyfsins á mörkuðum sínum í 36 löndum í Asíu. Alvotech stefnir að því að skrá líftæknisamheitalyf (biosmilar) frumlyfsins Humira síðar á þessu ári hjá lyfjayfirvöldum í Evrópu og Bandaríkjunum. Fyrirtækið hefur nú þegar gert stóra samstarfssamninga við fyrirtæki í Evrópu, Asíu, Kanada og Ísrael. Frumlyfið Humira seldist fyrir um 19 milljarða Bandaríkjadala á árinu 2019.

Mark Levick, forstjóri Alvotech.
Mark Levick, forstjóri Alvotech.

Mark Levick, forstjóri Alvotech, segir í fréttatilkynningu ánægjulegt að hefja samstarf við DKSH. „Við tilkynntum nýlega tímamótasamning við lyfjafyrirtækið STADA og undanfarin misseri höfum við gert mikilvæga samstarfssamninga við leiðandi fyrirtæki í Kína, Japan, Tyrklandi, Kanada, Ísrael, Indlandi og nú bætist DKSH í hópinn. Það styttist óðum í fyrstu lyfjaskráningar Alvotech á stærstu markaðssvæðum heims en fyrstu skrefin verða stigin í þeim efnum síðar á þessu ári. Samstarfssamningar tryggja okkur fjármagn til áframhaldandi þróunar lyfja og uppbyggingar fyrirtækisins og eru því mikilvægar,“ segir Mark Levick í fréttatilkynningu.

Líftæknilyf Alvotech sem nú eru í þróun eru samheitalyf við frumlyf á markaði í dag og munu renna af einkaleyfi á næstu árum. Umrædd lyf seljast fyrir rúmlega sjö þúsund milljarða króna á ári á heimsvísu eða um 50 milljarða Bandaríkjadala og eru notuð notuð til meðferðar á sjúkdómum eins og gigt, psoriasis og krabbameini.

Hjá Alvotech starfa nú um 450 vísindamenn og sérfræðingar en 180 starfsmenn voru ráðnir á árinu 2019 til hátækniseturs fyrirtækisins á Íslandi. Starfsstöðvar fyrirtækisins eru á Íslandi (þróun og framleiðsla), í Sviss og Þýskalandi (þróun og klínískar rannsóknir) og í Bandaríkjunum (skráningar lyfja og hugverk).

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK