Skuldbindingar Valitor vegna ferðaþjónustu 1,7 milljarðar

Heildarskuldbindingar Valitor vegna greiðslumiðlunar fyrir um 430 fyrirtæki í ferðaþjónustu bæði hér á landi og erlendis nemur 1,7 milljörðum króna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Valitor.

„Í ljósi COVID-19 hefur verið nokkur umræða bæði hér á landi og erlendis um skuldbindingar fjármálafyrirtækja vegna ferðaþjónustu. Vegna fjölmargra fyrirspurna hefur Valitor ákveðið að birta áætlaða heildarskuldbindingu félagsins vegna greiðslumiðlunar fyrir um 430 fyrirtæki í ferðaþjónustu bæði hér á landi og erlendis. Heildarskuldbiningin er um 1,7 milljarðar króna, þar af nemur engin einstök skuldbinding hærri upphæð en 0,7 milljörðum króna. Heildarskuldbindingin nær til hótela, ferðaskrifstofa, flugfélaga, bílaleiga og annarra ferðaþjónustufyrirtækja.

Valitor leggur nú sem fyrr áherslu á að stýra skuldbindingum sínum þannig að þær séu innan þeirra marka sem félagið telur ásættanleg,“ segir í tilkynningu frá Valitor. 

Efnisorð: Valitor
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK