Emirates segir upp „nokkrum“ vegna veirunnar

Emirates, sem er með höfuðstöðvar í Dúbaí og langstærsta flugfélag …
Emirates, sem er með höfuðstöðvar í Dúbaí og langstærsta flugfélag í Mið-Austurlöndum, er með um hundrað þúsund manns í vinnu og gerir út 270 breiðþotur. AFP

Flugfélagið Emirates ætlar að ráðast í uppsagnir vegna áhrifa kórónuveirufaraldursins á flugrekstur félagsins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá flugfélaginu en þar er ekki tiltekið hversu mörgum verður sagt upp. 

„Við höfum skoðað alla möguleika í stöðunni til að viðhalda rekstri okkar en höfum komist að þeirri niðurstöðu að því miður þurfum við að kveðja nokkra úr okkar dásamlega starfsliði,“ segir í tilkynningunni. 

Emirates, sem er með höfuðstöðvar í Dúbaí og er langstærsta flugfélag í Mið-Austurlöndum, er með um hundrað þúsund manns í vinnu og gerir út 270 breiðþotur. 

Farþegaflug til 159 áfangastaða félagsins hefur verið af skornum skammti frá því mars og hafa starfsmenn tekið á sig 25 til 50 prósent launalækkun á tímabilinu. Áætlunarflug til helstu flugvalla á Vesturlöndum hófst að nýju í síðustu viku.  

Forsvarsmenn Emirates segjast ekki taka ástandinu af léttúð og hyggst félagið gera hvað sem það getur til að vernda störf innan fyrirtækisins.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK