Fer fyrir deild sem stýrir 70 milljörðum dala

Jóhannes Þorsteinsson tók nýverið við sem yfirmaður fjárstýringar fjarskiptafyrirtækisins T-Mobile …
Jóhannes Þorsteinsson tók nýverið við sem yfirmaður fjárstýringar fjarskiptafyrirtækisins T-Mobile í Bandaríkjunum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Fyrir átján árum flutti Jóhannes Þorsteinsson ásamt eiginkonu sinni, Ágústu Vigfúsdóttur, líftækni verkfræðingi, til Bandaríkjanna þar sem hann hóf meistaranám í rafmagnsverkfræði. Síðar lauk hann MBA námi og hélt út í fjármálaheiminn, en fyrst um sinn starfaði hann við greiningar hjá Deutsche bank í New York. Þar vann hann sig upp og varð að ráðgjafa á fyrirtækjasviði bankans. Kom hann meðal annars að ráðgjöf fyrir fjarskiptafyrirtæki sem var meðalstórt á þeim tíma. Með hverjum samrunanum og kaupunum síðan hefur það fyrirtæki stækkað ört og alltaf var Jóhannes fenginn til ráðgjafar. Í kjölfar síðasta samrunans var honum boðin topp staða hjá fyrirtækinu.

Fyrirtækið sem um ræðir er T-Mobile og fyrr á þessu ári gekk stærsti samruninn í gegn, en þar keypti T-Mobile annað fjarskiptafyrirtæki, Sprint Nextel, og úr varð þriðja stærsta fjarskiptafyrirtæki Bandaríkjanna. Í kjölfarið á því var Jóhannesi boðið að taka við fjárstýringu hins sameinaða fyrirtækis og hóf hann þar störf á mánudaginn.

Erfitt er að átta sig almennilega á stærðunum sem eiga við um fyrirtæki af þessari stærðargráðu, en fjárstýringadeildin sem Jóhannes fer fyrir heldur utan um skuldafjármögnun sem nemur rúmlega þrefaldri landsframleiðslu Íslands.

Fór í gegnum hrunið á fyrstu árunum

Mbl.is ræddi við Jóhannes í vikunni og fór yfir feril hans og hvernig það kom til að hann endaði á þessum stað á miklum umbrotatímum hjá fyrirtækinu, sérstaklega í ljósi þess að lítið hefur farið fyrir Jóhannesi í íslenskum fjölmiðlum.

Jóhannes er fæddur árið 1978 og kláraði bæði Menntaskólann við Hamrahlíð og rafmagnsverkfræði við Háskóla Íslands áður en hann hélt út til Bandaríkjanna. Áður hafði hann starfað fyrir netþróun Íslandsbanka stuttu eftir aldamót. Samhliða námi við University of Maryland bauðst honum starf hjá Deutsche bank við fjárfestingabankastarfsemi þess í New York og byrjaði þar svo í fullu starfi eftir útskrift.

„Ég byrja í fjárfestingabankastarfsemi árið 2007 og hef upplifað svakalegar sveiflur í hagkerfinu og fjármálakerfinu síðan. Það hefur verið frábær skóli og ómælanleg reynsla sem hlýst af því,“ segir Jóhannes um fyrstu árin, en strax í byrjun ferilsins fór hann í gegnum fjármálakreppuna við lok síðasta áratugar.

Jafnaðist á við þjálfunarskóla fyrir hermenn

Fjármálageirinn er að sögn Jóhannesar allt annar og harðari úti en hér heima. Þannig segir hann samkeppnina gríðarlega og í hans tilfelli að starfa hjá Deutsche bank þá séu alltaf um 10 aðrir bankar með jafn hæft starfsfólk og jafn vel búið að reyna að finna tækifæri. Þannig sé hraðinn gríðarlegur og aldrei dauð mínúta. Viðurkennir hann að vinnutíminn sé mjög langur, starfið kalli á gríðarlegan aga og fyrstu árin hafi í raun jafnast á við þjálfunarskóla fyrir hermenn. „Það hefur verið mjög algengt að borða allar þrjár máltíðir dagsins í vinnunni,“ segir hann.

„T-Mobile varð minn kúnni“

Hjá Deutsche bank fór Jóhannes fljótlega að vinna við ráðgjöf til viðskiptavina á fyrirtækjasviði bankans. Segir Jóhannes að hann hafi verið viðloðandi fjarskiptageirann og tæknifyrirtæki á þessum 13 árum hjá bankanum. Þannig kom hann fljótlega að málefnum T-Mobile og hefur verið viðloðandi flest alla ráðgjöf Deutsche bank til fyrirtækisins síðan þá. Frá 2013, þegar T-Mobile var skráð á markað, var Jóhannes svo orðinn einskonar verkefnastjóri gagnvart fyrirtækinu. „T-Mobile varð minn kúnni,“ segir hann.

Á þessum tíma var fyrirtækið ekki enn orðið eitt af stóru aðilunum á fjarskiptamarkaðinum úti, og var með um 6-7% markaðshlutdeild á farsímamarkaði í Bandaríkjunum. Það hefur hins vegar breyst hratt síðustu ár og með kaupunum á Sprint verður félagið með um 30% markaðshlutdeild að sögn Jóhannesar.

Líkir innkomu T-Mobile við innkomu Nova á Íslandi

Líkir hann innkomu T-Mobile á bandaríska markaðinn að einhverju leyti við komu Nova á íslenska markaðinn. Fyrir hafi verið stór fyrirtæki, en T-Mobile hafi verið minna og getað gert breytingar á skemmri tíma og brugðist þannig við síbreytilegum fjarskiptaheimi. Þá hafi fyrirtækið verið duglegt að „pönkast“ í samkeppnisaðilunum á sama tíma og markmiðið hafi verið að bjóða viðskiptavinunum upp á mesta hraðann. Þannig nefnir Jóhannes að sameinað félag sé í mjög góðri stöðu varðandi eign á svokölluðum tíðnisviðum, sem eru grunnur fyrir að geta veitt þráðlausa fjarskiptaþjónustu. „Með kaupunum á Sprint erum við komin með sterkasta netið á tíðnirófi í heild,“ segir hann og bætir við að það eigi einnig við um hraða á hvern viðskiptavin.

Félagið er að stórum hluta í eigu Deutsche telekom, en japanska stórfyrirtækið Softbank er einnig stór hluthafi. Áður hafði Softbank keypt 85% hlut í Sprint og varð stór eigandi í T-Mobile við sameininguna á þessu ári. Hafði Jóhannes einnig komið að ráðgjöf fyrir Softbank og þekkti því vel til allra hliða fyrirtækjanna. Til að setja stærð fyrirtækjanna í samhengi þá eru hjá T-Mobile um 53 þúsund starfsmenn og hjá Sprint 28 þúsund. Samanlagðar tekjur þeirra eru um 80 milljarðar dala, en það er um 3,5 föld landsframleiðsla Íslands.

Boðið að taka við stjórnunartöðu hjá T-Mobile

Það má því segja að ferill Jóhannesar hafi einkennst nokkuð af uppgangi þessa fjarskiptafyrirtækis, en með þessum stóra samruna sem nú á sér stað opnuðust ný tækifæri. Jóhannes segir að eftir að kaupin á Sprint gengu formlega í gegn 1. apríl á þessu ári hafi stjórnendateyminu verið skipt út. Stjórnendur fyrirtækisins hafi svo komið að máli við hann og beðið hann um að taka við fjárstýringunni, en þar með heyrir hann beint undir fjármálastjóra félagsins. „Þetta var partur sem ég þekkti vel og hafði sinnt að nokkru leyti hjá Deutsche bank,“ segir hann og því hafi verið spennandi að stökkva á þetta nýja tækifæri.

35 sinnum til Tókíó á 8 árum

Auk langra vinnudaga hafa ítrekuð ferðalög fylgt vinnunni hjá Jóhannesi. Sem dæmi nefnir hann að samtals hafi hann ferðast 35 sinnum til Tókíó í Japan síðan 2012 meðan sambandið við Softbank var ræktað og hafi það náð hámarki í kringum kaupin á Sprint þegar hann fór þangað sex sinnum á nokkrum vikum.

Hann segir að verkefnin verði einhver þau sömu milli starfanna tveggja, en við bætist að nú sé hann kominn beint inn í rekstur þess fyrirtækis sem hann vinni fyrir. Framundan séu einnig spennandi tímar og miklar áskoranir við að keyra tvö fyrirtæki saman, en áformað er að fyrirtækin verði sameinuð undir einu nafni, T-Mobile, 1. ágúst. „Við erum að fara að umturna fyrirtækinu á næstu mánuðum,“ segir hann.

„Á næstu 3-5 árum ætlum við að gjörbylta markaðinum“

„Markmiðið er að ná miklum samlegðaráhrifum, um 6 milljörðum dala á ári. Þetta eru rosalega háar tölur en við munum ná því,“ segir Jóhannes bjartsýnn á komandi verkefni. Þá ætli þeir sér mikla hluti með fimmtu kynslóð farsíma. „Á næstu 3-5 árum ætlum við að gjörbylta markaðinum og áhersla verður á hvað fimmta kynslóðin getur gert.“ Vísar hann aftur til stöðu fyrirtækisins með eign á tíðnirófum og segir að þar með geti fyrirtækið boðið þessa þjónustu á lægra verði.

Jafnast á við þrefalda landsframleiðslu Íslands

Fjárstýringin sem Jóhannes mun stýra er ekkert rosalega fjölmenn deild, um 30-40 starfsmenn. Hins vegar stýrir hún gríðarlega háum fjárhæðum sem erfitt er að setja í samhengi við íslenskt viðskiptalíf. Deildin sér um alla fjármögnun fyrirtækisins, tryggingarstarfsemi, markaðsviðskipti og fjárstýringu og þá segir hann að taka eigi öll upplýsingakerfi fyrirtækjanna í gegn frá grunni og þar muni væntanlega verkfræðigrunnur hans koma að góðum notum.

Jóhannes segir að skuldafjármögnun fyrirtækisins sé um 70 milljarðar dala og til viðbótar við það komi vafningar og afleiðusamningar ýmiskonar. Áætlar hann að árlega verði um 4-5 milljarðar dala endurfjármagnaðir. Öllu þessu ber deildin ábyrgð á. 70 milljarðar dala jafngildir um 9.650 milljörðum íslenskra króna. Til samanburðar er landsframleiðsla Íslands um 2.965 milljarðar og markaðsvirði skráðra hlutabréfa á aðallista Kauphallarinnar um 1.180 milljarðar.

Skrítinn vinnutími næstu mánuði

En það er ekki bara nýtt starf sem tekur við hjá Jóhannesi og Ágústu. Samhliða breytingunni munu þau flytja frá New York, þar sem þau hafa búið síðustu 18 ár og þar sem börn þeirra þrjú fæddust öll. Stefnan er tekin á Seattle í ágúst, en fram að því er fjölskyldan stödd hér á landi og reyndar í sóttkví sem stendur. Segir Jóhannes að vinnudagurinn sé því frekar skrítinn sem stendur, en hann vinnur á vesturstrandartíma og er því um sjö klukkustunda tímamismunur. „Maður vinnur því fram á miðnætti alla daga,“ segir Jóhannes hlæjandi, en yfir þessa mánuði hér á landi getur hann allavega gert ráð fyrir að vinna í björtu þótt vinnutíminn nái fram á nótt.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK